Beta bloggar

13.09.2007 20:37:16 / elisabet456

Nýtt blogg!

Er byrjuð að blogga á 123.is! Tékk it át:

 

www.123.is/elisabet456 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 12:46:31 / elisabet456

Nýtt blogg ,,, von bráðar.

Er að vinna í nýrra og betra bloggi á 123.is:) jeiiiiii spennó spennó!

Ég ætla að reyna að vera geggjað snögg að gera það glæsilegt og þá leyfi ég ykkur að kíkja;) En þangað til, bíðið spennt! :) hehehehe 


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 19:37:10 / elisabet456

Af hverju 123.is?

Okei 123.is virðist vera að vinna þessa kosningu hérna til hliðar og þar á eftir kemur blogspot.com

Getið þið nokkuð sagt mér af hverju þær síður eru betri? Er alveg svakalega mikið að spá í þessu:lol:  Finnst Blogcentral orðið bara svakalega leiðó:)

 

Annars er bara allt gott, búin að vera í fríi í dag og í gær og er að fara að smakka frumraunina hennar Kristínar í maregnsbakstri rétt í þessu:) ummmm.... spennandi! hehe

 

Beta í bloggpælingum.... 


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 13:09:33 / elisabet456

Smá sunnudagsraus...

Halló gott fólk!

Sit hérna í vinnunni og það er mikil sunnudagsleti yfir fóki svo að ég ákvað að skrifa hérna nokkrar línur.

Lífið heldur áfram að vera yndislegt og fór ég í gær út að borða OG í leikhús með elskunni minni. Við fórum á Ítalíu (nammmmiiiiiii) og svo fórum við að sjá leikrit sem 2 árs leiklistarnemar eru að sýna og heitir .....uuuuuuu sjittt! Man ekki hvað það heitir:) EN allavegana þá var alveg geðveikt gaman og ég mæli svo sannarlega með því verki. Verkið er um fótboltamenn í englandi sem eru samkynhneigðir og er alveg SNILLD að sjá tvo íslenska hæfileikamenn fara á kostum í þeirra hlutverkum:)

En nóg af því,

Setti inn könnun hérna við hliðina og vona ég að þið svarið henni:) Málið er nefnilega að ég eiginlega bara hata blogCentral.is og langar að búa til nýtt og betra blogg! Það sem ég þoli ekki er að geta ekki sett myndir inn á bloggið sjálft og gert það þar með milljónsinnum skemmtilegra! Því myndir segja jú oft miklu meira en orð :D

Annars hlakka ég bara til að hitta ykkur vinkonur mínar sem ég hef ekki hitt allt of lengi og á næsta vika að fara í það:) ...hjúkkuhittingur á þriðjudagskvöldið og svo ms hittingur á miðvikudagskvöldið (hummmm Kristín;) ). Þannig að þá eru það bara Gulla og Dóra sem eru eftir og stelpur eruði á lausu einhverntíman? Mig langar í hitting:lol:

Sjáumst í vikunni;) KV. Beta...


» 24 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 20:09:04 / elisabet456

...Þú veist hvað ég meina mær ....

Já nú held ég að það sé aldeilis komin tími á nýja færslu! Enda hef ég ekki eina einustu afsökun til að blogga ekki, nóg að segja og heldur betur nógur tími þar sem ég er búin að liggja í bólinu síðustu daga.

Já eyjar tóku sem sagt sinn toll og ég er búin að liggja heima með hálsbólgu, hita og eitt stykki RISA frunsu (hún er svona á stærð við símann minn! án djóks :klikk: ) síðan ég kom heim.

En nóg af kvörtunum því allt þetta flensu stand skiptir svo alls engu máli í samanburði við EYJAR!!!!! Ohhh já það var svo ótrúlega gaman að ég myndi sko gera þetta allt aftur þó að frunsan þyrfti að vera á stærð við sjónvarpið mitt í það skiptið!

Fyrir ykkur sem hafið ekki farið á þjóðhátíð þá er þetta einhver einstakur heimur sem maður hoppar inn í í nokkra daga. Í þessum heimi eru allir fullir, þunnir eða að reyna að drekka sig fulla:D Þessi litli bær er fullur af fólki, tónlist, ljósum, flugeldum, tjöldum, bjór, bjór og meiri bjór!

Annars er bara voðalega erfitt að ætla sér að segja frá helginni! Þetta voru bara allt svona "you had to be there" móment svo að ég held ég láti bara myndirnar (sem eru komnar inn á ms myndasíðuna) tala sínu máli.

...nema kannski þið sem voruð þarna, hér kemur smá upprifjun;) TAKK fyirr æðislega helgi sem ég gleymi aldrei! 

  • Begga ... star wars gaurinn, lundi,
  • Harpa ... týndir lyklar, ATLI, smá "hvíld" í brekkunni, "hey stelpur! Lagið mittt!!! " OG "Elísabet, ef ég rúlla mér niður brekkuna, get ég þá í alvörunni fengið garnaflækju???"
  • Kolla... fléttur, dans í "holunni" :) , pullan góða klukkutíma f. brottför 
  • Dóra... "farð þú bara aftur á kvíabryggju þarna!?!?!!!" , Hey Stebbi ég skal sko *kvgna* á þér *jnasdf* :o) , RISA húfa! + tilnefningin Hösler ferðarinnar! 
  • Andri... já sumir sváfu í holu!!!
  • Helgi minn... takk takk takk fyrir að bjarga mér frá óhljóðunum í Árna og gefa mér besta móment lífs míns í staðin;) og já hér getur komið allt of mikið af hlutum sem er óviðeigandi að skrifa á netið, svo að bara call me ef þig vantar upprifjun:lol:

           

          Beta ....og frunsan 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 00:09:33 / elisabet456

Jæja komin tími á nýja færslu!

Já það er alveg óhætt að segja að maður sé lélegur bloggari! Skrifar ekkert hérna inn í margar vikur! Issssssss :lol:

EN það er nú samt alveg nóg að gerast þessa dagana sem maður ætti að geta skrifað um. Annars held ég að fólk sé bara minna að lesa blogg og svona á sumrin.

Ég skellti mér nú bara til gamla góða Ísafjarðar um síðustu helgi! Já, hef ekki farið í 3 ár og svei mér þá það var bara ansi margt breytt! Nánast allir vinirnir fluttir í burtu eða að fara að flytja, nýr gervigrasvöllur, vegurinn upp að skíðaskála allt öðru vísi, Hamraborg farin að selja pizzur, BT, Langi mangi, edinborgarhúsið og ég veit ekki hvað og hvað!

EN við Helgi vorum nú sammála um það að það væri ofsalega gaman að koma vestur og að Ísafjörður væri fallegri og snirtilegri en aldrei fyrr:D  Svo langar mig bara að segja takk takk takk allir sem ég hitti og takk takk takk Tinna f. frábært afmælisparty;) Ég skemmti mér sko konunglega;) ...er reynar enþá að ná tattoinu af brjóstinu af mér:) EN það er önnur saga;)

 

En talandi um ferðalög þá er það þjóðhátíð í eyjum eftir slétta viku!!!!! JEiiiiiiiiiiiiii! Ég bara get ekki beðið! :D held að það verði ógeðslega gaman og mér er alveg sama þó að það verði rigning eða bara ég veit ekki hvað ég ætla að skemmta mér í botn! :D

Hvað ætlið þið annars að gera um Versló? Er einhver að fara til eyja sem ég veit ekki um? OG þið sem hafði farið áður, hvað er möst í bakpokann???


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 00:58:51 / elisabet456

MS blogg sett á laggirnar!

Jæja þá er komin í gang MS bloggsíðan sem við stelpurnar erum búnar að tala lengi um að gera:)

Markmiðið með henni er að við höldum betur sambandi og setjum alla hittinga þar inn svo að allir viti hvað er að gerast:)

Tékk it át:

www.blog.central.is/mssykurpudarnir.is


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 02:35:45 / elisabet456

Smá næturvaktarröfl

Er á næturvakt og er með kveikt á rúv og svei mér þá ég held að einhver hafi óvart sett á "laugardagskvöldsplaylistann" í staðin f. miðvikudags því það er bara STUÐ8) Var að spá í að fara að dilla rassi, EN held það væri óviðeigandi ef hjúkkan kíkir á mig:)

"Grís á sér stað á sér stund á sér tísku.... góðar minningar með þessu lagi;) hehe"

Annars fór ég í klippingu í dag og var frekar ósátt þegar ég kom heim. En ég er orðin sáttari núna, þegar súper hárgreiðslustofublásturinn er farin úr því.

Hlakka annars bara til að hitta ykkur aftur eftir þetta næturvaktabrölt! Hjúkkur á fimmtudaginn:) og þið hin um helgina:D

Kossar og knús, Þyrnirósin sem sefur alla daga.....

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 13:15:23 / elisabet456

Sweet "Blue" monday

Ég held að við getum öll verið sammála því að mánudagar séu opinberir þreytu og letidagar. Af því að þó að flestir eigi frí um helgar þá eru þær yfirleitt nýttar í jamm, útilegur, bústaðaferðir, verslunarferðir, auka vinnu o.fl o.fl.

Þess vegna elska ég mánudaga þegar ég er í fríi (eða að fara á kvöldvakt eins og núna). Þá get ég sofið út og notið þess að gera ekki neitt án þess að fá brot af samviskubiti:lol: Allt venjulegt fólk er í vinnunni sinni og það er hvorki jamm, útilega né verslunarferð í gangi sem ég er að missa af;)

Annars er það helst að frétta að ég er búin að panta mér far með Herjólfi á Þjóðhátíð í Eyjum fimmtudagskvöldið 2.ágúst!!! Það er sem sagt staðfest að ég mun skemmta mér með fullt af góðu fólki á eyjunni fögru um verslunarmannahelgina. Og svei mér þá, ég bara get ekki beðið8)

Vona að þið hafið átt góðan mánudag og stelpur (þið vitið hverjar þið eruð!) Þjóðhátíð er alveg málið:) Skítt með sumarpróf og skóla í útlöndum:D .....


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 11:00:56 / elisabet456

Gleðilega þjóðhátíð!

Hæ hó jibbí jei..jibbííí jei... það er komin 17. júní!

Jebb það er komin 17. júní og ég er bara vöknuð og meira að segja búin að fara aðeins í bæjinn í dag! Já, ég fór niður í bæ áðan til þess að koma pizzu og sleikjósölu RÖSKVU í gang og svei mér þá ég held ég hafi bara aldrei upplifað svona hátíðlega stemningu á 17. júní áður.

Það var afskaplega róleg stemning í bænum og aðeins fáir á ferli EN allir sem voru komnir niður í bæ voru í sínu fínasta pússi eða þá að vinna á fullu í því að laga til, gera borgina fallega eða undirbúa hátíðahöldin:D Mæli sem sagt með því að taka daginn snemma á 17. júní og taka rölt í bænum.....jeahhh, er kannski ekki alveg að sjá það gerast!

Annars verð ég sem sagt bara að vinna í dag EN ég vil hvetja alla til þess að skella sér í bæjinn og koma við í Röskvutjaldinu í leiðinni og fá sér pizzu eða sleikjó í tilefni dagsins;)

:ON44j9vgNpbuJM:http://www.veidihornid.is/Myndir/Frettir/islenski-faninn.jpg" alt="" width="112" height="81">

.....hahahah Dorrit er í sjónvarpinu að syngja þjóðsöngin! Ánægð með hana:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 12:47:19 / elisabet456

Til hamingju Hrefna! :)

 Í dag á elsku stóra sysir mín afmæli!

Hún Hrefna systir er hvorki meira né

minna en 35 ára í dag:D

Til hamingju, til hamingju elskan:)

 Í dag er ég í "ég elska, hata sambandi" við vaktavinnuna mína. Ég elska hana þessa stundina af því að ég sit heima kl 1 á föstudegi í náttfötum og hef það kósí, EN ég hata hana af því að ég kemst ekki í útilegu með yndislegu vinkonum mínum um helgina:cry: Já það er sem sagt ákveðið að ég verð í bænum um helgina þar sem ég mun sinna veikum og öldruðum þegnum þjóðarinnar auk þess sem ég mun selja pizzur niðri í bæ á þjóðhátíðardaginn! Jeiiiii.....

En ég vona bara að þið stelpur (og þið hin, ef einhverjir lesa þetta:) ) skemmtið ykkur vel um helgina og munið: "ég verð með ykkur í huga og hjarta!" hehehehehe.....

Stjörnuspáin mín í mogganum í dag var soldið skemmtileg:

"Ef þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ætlar að gera í dag, ertu í réttum stellingum. Þetta er uppskriftin að ævintýri. Fáðu bogamann með þér."

Gaman að þessu þar sem ég hef lítið plan í dag OG þekki ansi skemmtilegan bogamann;)

 

 

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 00:23:31 / elisabet456

Eitt video enn:) ...pæling... þetta er snelld

http://youtube.com/watch?v=JJ8jvkB1D4o

 

 Já ég bara varð að setja eitt video í viðbót af honum Atla mínum! ÉG er svo stolt af honum, algjör snilli þar á ferðinni. Og fyrir þá sem vilja fylgjast með kauða getið þið leigt myndirnar "Monster house" og "Zathura" þar sem hann fer á kostum sem þeir "Dýri" og "já einhver annar kauði" :) hehehehehe

Annars er bara allt ljómandi að frétta hérnamegin:) Lífið leikur við mig og ég er svaka ánægð með sumarið og allt sem því fylgir:lol:

Nenni voða lítið að skrifa hérna inn í veðurblíðunni en ég reyni nú kannski eitthvað á næstunni...

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 13:37:49 / elisabet456

Fyrirmynd okkar allra ....jehh!

....Og kona ársins eeeeerrrrrrrrr.....

Appelsínugula beinagrindin með gula hárið!!!!!!!!!!

Já stelpur nú er bara að draga fram neonbeliku brjóstarhaldarana og tigerkjólana og reyna að líkjast þessari dívu;)

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 19:43:36 / elisabet456

Tékkiði á þessu!

http://youtube.com/watch?v=nhDP4ZfO3hU

 

 hahahaha:lol: Þetta er svooo mikil snilld! Verðið að horfa á þetta. Þetta er hann Atli minn sem byr einmitt hjá mér núna:o)

Hvað ætliði annars að gera um helgina?

 Kv BETUS


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 20:52:15 / elisabet456

Ný myndasíða!

Kristín Rós er frábær! Hún er búin að búa til MS myndasíðu þar sem við ætlum öll að reyna að vera dugleg að henda inn myndum:D

Síðan er : sykurpudarnir.myphotoalbum.com           Endilega tékk it át;) og spurjiði svo mig, Stínu eða Ástu ef þið viljið password!

Já og eitt enn. Endilega let me know ef þið kunni að setja myndir inn á þetta :D hehehe HJÁLP!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
RSS tengill
Dagsetning
23. febrúar 2012